Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   sun 01. maí 2022 08:40
Ívan Guðjón Baldursson
Jonathan David kostar 50 milljónir
Mynd: EPA

Einn af efnilegustu framherjum Evrópu hefur fengið leyfi til að skipta um félag í sumar. Jonathan David er 22 ára landsliðsmaður Kanada sem hefur verið að raða inn mörkum með Lille.


David er markahæsti leikmaður Lille á tímabilinu með 17 mörk í öllum keppnum en á siðustu leiktíð skoraði hann 13 og lagði upp 5 er Lille varð óvænt Frakklandsmeistari.

Liverpool og Arsenal eru meðal félaga sem hafa verið orðuð sterklega við David og greinir fréttamaðurinn Fabrizio Romano frá því að Lille er reiðubúið til að selja kappann fyrir 50 milljónir evra.

David á þrjú ár eftir af samningi sínum við Lille. Hann er einnig algjör lykilmaður í landsliði Kanada þar sem hann hefur gert 20 mörk í 30 leikjum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner