Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   lau 02. október 2021 17:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kristall léttur eftir þrennuna: Hvernig get ég aðstoðað?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur er skrefi nær að vinna tvöfalt í ár en liðið er komið í úrslit Mjólkurbikarsins eftir 3-0 sigur gegn Vestra í undan úrslitum í dag.

Hinn tvítugi Kristall Máni Ingason sem var valinn efnilegasti leikmaður Pepsi Max-deildarinnar gerði sér lítið fyrir og skoraði öll mörkin.

Hann var eðlilega í skýjunum eftir leikinn og setti inn skondna mynd af sér á Twitter eftir leikinn en vegna þess að hann skoraði þrennu þá fékk hann að eiga bolta sem var notaður í leiknum.

Víkingur mætir ÍA í úrslitum en Skagamenn unnu Keflavík með tveimur mörkum gegn engu fyrr í dag.

Myndina má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner