Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   þri 03. janúar 2023 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enzo fór til Argentínu í leyfisleysi - Benfica gefur honum úrslitakost
Mynd: Getty Images

Enzo Fernandez miðjumaður argentíska landsliðsins og Benfica er gríðarlega eftirsóttur eftir frábæra frammistöðu með heimsmeisturunum á HM í Katar.


Chlesea er talið leiða kapphlaupið og sé svo gott sem búið að tryggja sér leikmanninn.

Benfica virðist þó ekki ætla gefast upp en Enzo hefur lítinn áhuga á portúgalska félaginu. Hann skellti sér heim til Argentínu til að fagna áramótunum án leyfis og það hefur ekki farið vel í forráðamenn Benfica.

Þeir hafa skipað honum að mæta á æfingu strax og hafa gefið honum úrslitakost en það er ekki vitað hver sá kostur er en það verður að teljast líklegra en ekki að Fernandez verði leikmaður Chelsea áður en glugginn lokar.


Athugasemdir
banner
banner
banner