Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
   fös 03. júní 2022 20:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gary: Ég hefði kannski átt að fá rautt spjald
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfoss gerði sér góða ferð til Akureyrar og lagði Þór 2-0 í Lengjudeildinni í kvöld. Gary Martin fyrirliði liðsins spjallaði við Fótbolta.net eftir leikinn.


Lestu um leikinn: Þór 0 -  2 Selfoss

„Við erum ánægðir með sigur. Þetta er erfiðasti staðurinn til að koma og spila fótbolta fyrir mig, fimm tíma ferðalag með rútu, þetta er alltaf erfiður leikur. Þeir spila mikið af löngum boltum, við náðum í þrjú stig og erum ánægðir með það,"

Þórsliðið var mun meira með boltann í leiknum en gekk erfiðlega að skapa sér nógu góð færi.

„Ef maður skorar fyrsta markið þá breytir það leiknum, við vorum mjög slakir í dag, þetta var versti leikurinn okkar á tímabilinu en við vinnum samt 2-0 svo við verðum að vera sáttir, við vorum hræðilegir."

Gary uppskar eitt gult spjald í leiknum og hefði hæglega getað fengið fleiri, hann játar það.

„Ég var klárlega slakasti maðurinn á vellinum. Ég hefði kannski átt að fá rautt spjald. Ég hefði ekki getað mótmælt því, ég ætlaði að taka aukaspyrnu en þeir stóðu fyrir og dómarinn gerði ekkert í því. Leikmenn Þórs trylltust og svo fæ ég gult."

„Í seinna atvikinu renn ég þegar ég pressa boltann, fyrir mér er það ekki gult en hann hefði getað gefið mér spjald. Ég var heppinn að hafa verið áfram inná, þess vegna tók Deano mig útaf eftir 70 mínútur,"


Athugasemdir
banner
banner
banner