Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fös 04. júní 2021 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Zaha búinn að láta vita að hann vilji félagaskipti
Wilfried Zaha.
Wilfried Zaha.
Mynd: Getty Images
Wilfried Zaha hefur tjáð Crystal Palace það að hann vilji fara frá félaginu í sumar.

Það er the Times sem heldur þessu fram.

Hann vill komast frá Crystal Palace áður en næst undirbúningtímabil hefst samkvæmt greininni. Zaha hefur verið orðaður við stærri félög undanfarin sumur en Palace hefur ekki viljað selja hann fyrir minna en 100 milljónir punda.

Hinn 28 ára gamli Zaha skoraði 11 mörk í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og hann er búinn að láta uppeldisfélag sitt vita að hann vilji fara í sumar. Everton og Tottenham eru sögð áhugasöm um Zaha.

Samningur Zaha við Crystal Palace rennur út 2023.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner