Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   sun 04. október 2020 12:28
Ívan Guðjón Baldursson
Porto hafnaði bættu tilboði frá Man Utd
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því að félagaskipti Alex Telles til Manchester United líti ekki vel út þar sem félögin komast ekki að samkomulagi um kaupverð.

Porto hafnaði öðru tilboði Man Utd í morgun samkvæmt heimildarmönnum Sky en þetta tilboð hljóðaði uppá 15,4 milljónir punda.

Porto vill fá 22 milljónir fyrir þennan brasilíska bakvörð sem verður samningslaus næsta sumar.

Rauðu djöflarnir vilja ekki borga of mikið fyrir leikmann sem þeir geta fengið á frjálsri sölu á næsta ári.

Hjá félaginu eru Luke Shaw og Brandon Williams vinstri bakverðir en Timothy Fosu-Mensah getur einnig leyst stöðuna af hólmi.
Athugasemdir
banner
banner
banner