Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   fim 05. október 2023 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Högg fyrir Cardiff og velska landsliðið
Mynd: EPA
Aaron Ramsey, fyrirliði Wales og leikmaður Cardiff í ensku Championship-deildinni, verður frá vegna meiðsla næstu vikurnar.

Ramsey mun missa af næstu tveimur mánuðum hið minnsta vegna meiðsla í fæti. Hann er með skaddaða sin í hné.

Hann mun því missa af síðustu þremur leikjum Wales í undankeppni EM.

Sagt er frá því að hann verði frá í 8-10 vikur en mögulega þurfi hann að fara í aðgerð sem gæti lengt endurkomuferlið. Ramsey hefur ekki spilað síðasta hálfa mánuðinn vegna meiðslanna.

Wales er þremur stigum á eftir Tyrklandi og Króatíu í D-riðli. Liðið á eftir að mæta Króatíu, Armeníu og Tyrklandi í undankeppninni.
Athugasemdir
banner
banner
banner