Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   fim 09. apríl 2026 10:00
Snæbjört Pálsdóttir
Arna um lífið í Noregi: „Kom inn í þetta í hálfgerðri þeytivindu“
Eimskip
Arna Eiríksdóttir leikur með Vålerenga í Noregi.
Arna Eiríksdóttir leikur með Vålerenga í Noregi.
Mynd: Vålerenga

Landsliðskonan Arna Eiríksdóttir segir fyrstu mánuðina í Noregi hafa verið viðburðaríka eftir að hún gekk til liðs við norska liðið Vålerenga, í kjölfar frábærrar frammistöðu með FH síðasta sumar. Hún er nú komin aftur inn í landsliðshópinn eftir meiðsli og er bjartsýn á framhaldið.

„Ótrúlega gott, kom náttúrlega bara inn í þetta í svona hálfgerðri þeytivindu. Ótrúlega mikið að gerast og ótrúlega margir leikir á stuttum tíma eftir að ég kom út,“ sagði Arna þegar Fótbolti.net ræddi við hana um komandi landsleikki og lífið í Noregi.


Arna missti af stórum hluta undirbúningstímabilsins vegna meiðsla, en segir sig nú komna aftur á góðan stað.

„Þetta er búið að vera aðeins rólegra núna, ég náttúrlega missti af stórum hluta á undirbúningstímabilinu út af þessum meiðslum, en er komin aftur inn í þetta núna og mér líður mjög vel.“

Hún segir samkeppnina í liðinu mikla, en lítur jákvætt á stöðuna. Hún hefur ekki verið í byrjunarliðinu í fyrstu þremur umferðunum.

„Ég er bara bjartsýn, ég þarf náttúrulega bara að vinna mig inn í liðið og hafa fyrir mínu sæti. Mér fannst ég hafa sannað mig vel á síðasta tímabili þannig ég er bara bjartsýn.“

Arna hefur einnig notið þess að hafa annan Íslending með sér hjá félaginu en landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir er einnig að mála hjá Vålerenga.

„Það er frábært, við Sædís erum mjög góðar vinkonur og það er mjög gaman hjá okkur. Hún er dásamleg og það er dásamlegt að vera með annan Íslending. Það er svona aðeins öðruvísi dýnamík þannig að það er mjög gott að hafa hana.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að neðan.


Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Slapp
banner
banner