Mikel Arteta, stjóri Arsenal, staðfesti það á fréttamannafundi í dag að Kai Havertz yrði ekki með í fyrri leiknum gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni.
Leikurinn verður klukkan 19:00 annað kvöld á Metropolitano leikvangnum.
Leikurinn verður klukkan 19:00 annað kvöld á Metropolitano leikvangnum.
Hinn 26 ára gamli Havertz fór af velli vegna vöðvameiðsla á 35. mínútu í 1-0 sigrinum gegn Newcastle um síðustu helgi og kom Viktor Gyökeres inn í hans stað.
Þýski sóknarmiðjumaðurinn Havertz ferðaðist því ekki með til Spánar og það gerði Jurrien Timber ekki heldur en hann er að glíma við nárameiðsli.
Riccardo Calafiori og Ebere Eze verða hinsvegar með, Eze fór af velli gegn Newcastle en það var varúðarráðstöfun.



