Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   fim 09. apríl 2026 22:50
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Björn Darri hetjan í Garðabæ
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
KFG 3 - 2 Reynir S.
1-0 Björn Darri Ásmundsson ('22)
1-1 Jordan Smylie ('28)
2-1 Björn Darri Ásmundsson ('43)
3-1 Pétur Máni Þorkelsson ('64)
3-2 Bóas Heimisson ('90)

KFG og Reynir Sandgerði áttust við í eina leik kvöldsins í Lengjubikar karla og náði Björn Darri Ásmundsson forystunni fyrir heimamenn í Garðabæ.

Jordan Smylie var ekki lengi að jafna en aftur skoraði Björn Darri til að endurheimta forystuna fyrir leikhlé.

Pétur Máni Þorkelsson tvöfaldaði forystu KFG á 64. mínútu og tókst Sandgerðingum ekki að minnka muninn fyrr en alltof seint, svo lokatölur urðu 3-2.

Liðin mættust í B-deild Lengjubikarsins og enda bæði með 9 stig eftir 5 umferðir.
Slapp
banner
banner