Alisson Becker, markvörður Liverpool og brasilíska landsliðsins, er opinn fyrir því að ganga í raðir ítalska félagsins Juvents í sumar. Þetta kemur fram í Gazzetta dello Sport.
Einhverjar breytingar verða á hópnum hjá Juventus eftir tímabilið og er því meðal annars haldið fram að Michele Di Gregorio verði seldur frá félaginu.
Juventus vill sækja öflugan markvörð í hans stað og samkvæmt Gazzetta er Alisson þar efstur á blaði.
Nýlega virkjaði Liverpool ákvæði í samningi Alisson sem er nú samningsbundinn til 2027, en talið er að það hafi aðeins verið gert til þess að tryggja það að hann færi ekki frítt í sumar, frekar en að láta hann spila í eitt tímabil til viðbótar.
Juventus hefur átt viðræður við föruneyti Alisson sem er sagður opinn fyrir því að fara aftur til Ítalíu, en hann lék með Roma áður en Liverpool keypti hann árið 2018.
Ítalski miðillinn segir Juventus reiðubúið að bjóða þessum 33 ára gamla markverði þriggja ára samning.
Luciano Spalletti er þjálfari Juventus en hann þjálfaði Alisson hjá Roma og vill ólmur endurnýja kynni sín við Brasilíumanninn.


