Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
   fös 10. apríl 2026 18:50
Brynjar Ingi Erluson
Arteta um framtíðina: Höfum ekki tíma til að ræða það
Mikel Arteta
Mikel Arteta
Mynd: EPA
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segist ekki hafa tíma til að ræða eigin framtíð á þessu augnabliki og að öll einbeiting fari í að klára tímabilið.

Arteta er samningsbundinn Arsenal út næsta tímabil en það stendur til að ræða framtíð hans eftir yfirstandandi leiktíð.

Spánverjinn tók við Arsenal í desember árið 2019 og komið því aftur í fremstu röð.

Arsenal er á toppnum í ensku úrvalsdeildinni, komst í úrslit deildabikarsins og er komið með annan fótinn í undanúrslit Meistaradeildarinnar.

Enska pressan spurði Arteta út í framtíð hans á fréttamannafundi í dag.

„Það eru engar fréttir af því. Við höfum ekki tíma til að ræða það núna,“ sagði Arteta sem útskýrði síðan ástæðuna fyrir fjölmiðlum.

„Ég er algerlega skuldbundinn félaginu og er ótrúlega ánægður og líður vel. Fjölskyldunni líður vel og hef enn markmið sem ég vil ná með félaginu. Í augnablikinu erum við á góðum stað,“ sagði hann enn fremur.
Slapp
banner