Silvio Baldini, þjálfari U21 landsliðs Ítalíu, mun stýra ítalska A-landsliðinu í vináttulandsleikjum í júní. Þetta hefur ítalska fótboltasambandið staðfest.
Ítalía, sem mistókst að komast á HM þriðja mótið í röð, leikur gegn Grikklandi og Lúxemborg í sumar; 3. og 7. júní.
Ítalía, sem mistókst að komast á HM þriðja mótið í röð, leikur gegn Grikklandi og Lúxemborg í sumar; 3. og 7. júní.
Gennaro Gattuso landsliðsþjálfari og Gabriele Gravina forseti ítalska sambandsins sögðu báðir af sér eftir að Ítalía tapaði gegn Bosníu í umspilinu fyrir HM.
Forsetakosningar verða hjá ítalska sambandinu 22. júní og eftir það verður nýr þjálfari ráðinn.
Fyrsta verkefni nýs landsliðsþjálfara verður síðan Þjóðadeildin í haust en Ítalía er í riðli með Frakklandi, Belgíu og Tyrklandi.



