Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
   fös 10. apríl 2026 09:30
Elvar Geir Magnússon
Markvörður Egyptalands í bann fyrir að slá til dómara
Mohamed El-Shenawy.
Mohamed El-Shenawy.
Mynd: EPA
Mohamed El-Shenawy, landsliðsmarkvörður Egyptalands, hefur fengið fjögurra leikja bann fyrir að slá til aðstoðardómara eftir 1-1 jafntefli liðs síns, Al-Ahly, gegn Ceramica Cleopatra í egypsku deildinni.

El-Shenawy var á varamannabekknum í leiknum en hann var reiður yfir því að sitt lið hafi ekki fengið vítaspyrnu í uppbótartíma.

El-Shenawy er 37 ára og var aðalmarkvörður Egyptalands í Afríkukeppninni 2025. Hann fer væntanlega með liðinu á HM í sumar.

Al-Ahly er fimm stigum á eftir toppliði Zamalek í egypsku deildinni.


Slapp
banner