Gunnar Borgþórsson þjálfari Selfoss var að vonum sáttur með 1-3 sigur á sínu gamla liði Val í Pepsi deild kvenna í gær.
„Mér fannst leikurinn frá okkar hlið mjög skemmtilegur, mikið af flottu uppspili og góðri vörn," sagði Gunnar í samtali við Fótbolta.net.
„Mér fannst leikurinn frá okkar hlið mjög skemmtilegur, mikið af flottu uppspili og góðri vörn," sagði Gunnar í samtali við Fótbolta.net.
„Ég er óánægður með að hafa ekki nýtt öll þessi fallegu færi í fyrri hálfleik. Ég hefði viljað fara inn í hálfleikinn með meira en eitt mark, það er erfitt að spila gegn Val."
Valur fengu tvö dauðafæri í stöðunni 1-3 þar sem þær hefðu auðveldlega getað jafnað leikinn.
„Ég sagði við bekkinn að ég fékk smá ónot í magann. Við gáfum þeim mark og sýndum smá kæruleysi. Panikkuðum og spiluðum ekki okkar bolta en markmaðurinn okkar bjargaði á ögurstundu og varði frábærlega."
Dagný Brynjars átti enn einn stórleikinn.
„Hún er klárlega frábær leikmaður og mikilvæg fyrir liðið. Við fundum það í vetur að við söknuðum hennar. Hún er Selfyssingur og spilar fyrir Selfoss.
„Eins lengi og við mögulega getum þá ætlum við að berjast á toppnum," sagði Gunnar að lokum.






















