Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mán 10. september 2018 17:15
Magnús Már Einarsson
Dele Alli ætti að ná leiknum gegn Liverpool
Mynd: Getty Images
Dele Alli verður líklega klár í slaginn fyrir leik Tottenham og Liverpool á laugardaginn.

Aili varð fyrir smávægilegum meiðslum í 2-1 tapi Englendinga gegn Spánverjum í Þjóðadeildinni á laugardag og verður ekki með í vináttuleiknum gegn Sviss á morgun.

„Alli fann fyir smá verk og hann ætti að verða klár með félagsliði síina um helgina en leikurinn á þriðjudaginn kemur of snemma," sagði Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englendinga, í dag.

Tottenham fær Liverpool í heimsókn á Wembley klukkan 11:30 á laugardaginn.
Athugasemdir
banner
banner