Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
Bestur í Mjólkurbikarnum - Kominn tími á bikarævintýri í Mosfellsbæ
Rúnar Páll: Við hefðum getað skorað fleiri mörk
Fékk rautt í hálfleik: Mér fannst ég ekki vera of aggressívur
Jói Kalli tekur ábyrgð: Eitt að tapa leik en annað á þennan hátt
Nenad eftir sigur á KA: Auðvitað okkar besti leikur
Haddi ósáttur: Nenntum ekki að leggja okkur fram
Heimir Guðjóns maður leiksins: Það er geggjaður matur þannig ég hlakka til
„Er með Þórshjarta þannig það er gaman að vinna KA"
Viktor ósáttur á bekknum: Fór í hálfgert blackout
Damir svekktur: Vorum tíu sekúndum frá þessu
Lárusi Orra létt: Okkur var heldur betur refsað í dag
Axel Óskar: Við erum miklu stærra lið samt
Nauðsynlegur sigur fyrir framtíð Jökuls? - „Ég er raunverulega ekki að pæla í því“
„Hann er uppalinn strákur sem hefur lagt mikið á sig til þess að ná langt"
Jóhann Árni: Tilfinningar brutust út
Davíð Smári pirraður: Vorum einhvern veginn ekki tilbúnir í fightið
Óskar Hrafn vanur því að detta úr bikar: Lífið heldur áfram
Gunnar Heiðar spenntur: Þetta er nýi núllpunkturinn
Aron Baldvin: Vissum að við myndum fá bestu útgáfuna af þeim
Ólafur Ingi: Lokuðum búðinni eftir rauða spjaldið
   lau 11. apríl 2026 19:03
Brynjar Ingi Erluson
Brynjar Björn: Svekkjandi að tapa á svona marki
Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari Leiknis
Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari Leiknis
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari Leiknis, var svekktur eftir 1-0 tapið gegn Vestra í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á Kerecis-vellinum á Ísafirði í dag.

Lestu um leikinn: Vestri 1 -  0 Leiknir R.

Þjálfarinn var nokkuð sáttur með frammistöðu sinna manna, en segir það hafi verið svekkjandi að tapa á þann hátt sem liðið gerði með klaufalegum mistökum undir lok leiks.

„Svekkjandi að tapa á svona marki eins og við töpuðum á. Heilt yfir var Vestri örlítið sterkari aðilinn en á færum held ég að þetta hafi verið nokkuð jafnt. Þeir fá færi og við fáum færi svo skora þeir úr svona mistökum sem við gerum úr okkar teig. Það er svekkjandi,“ sagði Brynjar við Fótbolta.net.

Markið kom fjórum mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma þegar Leiknismenn voru komnir á ágætis ról í leiknum.

„Jú sérstaklega í ljósi þess að mér fannst við komast meira inn í leikinn síðustu tuttugu mínúturnar og vorum aðeins meira með boltann og komast upp völlinn. Við fengum alveg okkar tækifæri til þess að skora mark en auðvitað það endað 0-0 og farið í framlengingu sem hefði verið fínt og við hefðum séð hvað hefði gerst þar.“

„Við vorum kannski smá ryðgaðir í dag og höfum ekki spilað leik í 2-3 vikur. Við tókum leik við Smára í bikarnum sem var snjóað eiginlega frá okkur og síðan var frestað þessum leiki síðustu helgi yfir á þessa helgi núna. Það var örlítið ryð í okkur og síðan má horfa framhjá því, það er ferðalag og menn fóru snemma af stað í morgun. Mér fannst leikurinn heilt yfir miðað við allt og líka alls staðar á vellinum fannst mér frammistaðan ágæt hjá okkar liði en hefðum getað verið betri með boltann í þeim stöðum sem við sköpum okkur í og í kringum teig Vestra,“
sagði hann ennfremur en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Slapp
banner
banner