Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   lau 11. september 2021 07:30
Victor Pálsson
Rodgers vitað af Lookman í átta ár
Mynd: Getty
Brendan Rodgers, stjóri Leicester, er hæstánægður með að hafa náð að klófesta Ademola Lookman í sumarglugganum.

Lookman er 23 ára gamall vængmaður sem var lánaður til Leicester frá RB Leipzig í Þýskalandi þar sem lítið gekk upp.

Rodgers reyndi að fá Lookman til Celtic í Skotlandi á sínum tíma áður en hann samdi við Everton frá Charlton árið 2017.

„Ég er mjög spenntur fyrir því að vinna með Ade. Hann er mjög efnilegur," sagði Rodgers.

„Ég vildi fá hann til Celtic er hann var á mála hjá Charlton. Ég hef vitað af honum síðan hann var 15 ára gamall."

„Hann er með allt til að ná árangri - hann er frábær með boltann, horfir vel á leikinn og er með auga fyrir marki."
Athugasemdir
banner
banner
banner