Tottenham er á fallsvæði ensku úrvalsdeildarinnar þegar sex leikir eru eftir af tímabilinu.
Tottenham tapaði 1-0 í dag fyrir Sunderland í fyrsta leik Roberto De Zerbi við stjórnvölinn.
Tottenham tapaði 1-0 í dag fyrir Sunderland í fyrsta leik Roberto De Zerbi við stjórnvölinn.
Tottenham hefur ekki enn unnið leik á þessu ári, liðið hefur farið í gegnum 14 leiki í röð án sigurs á árinu sem er svakalegt.
Opta bendir á það aðeins þrjú lið hafi farið í gegnum svona hrinu áður. Það eru Derby frá 2008 (18 leikir), Sunderland frá 2003 (17 leikir) og Swindon frá 1993 (15 leikir).
Öll þessi lið féllu og það er ekki góðs viti fyrir Spurs.


