Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   sun 12. apríl 2026 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Unglingalandsliðsmenn framlengja við Þór
Mynd: Þór
Ásbjörn Líndal Arnarsson og Sverrir Páll Ingason hafa báðir framlengt samninga sína við Bestu deildar lið Þórs.

Ásbjörn er fæddur árið 2008 og spilað sjö leiki fyrir Þór í deild- og bikar. Varnarmaðurinn hefur verið í stóru hlutverki á undirbúningstímabilinu.

Þá hefur hann verið fastamaður í unglingalandsliðum Íslands og alls spilað 17 leiki frá U16 og upp í U19.

Hann skrifaði undir samning út keppnistímabilið 2028 eins og Sverrir Páll, sem er jafnaldri Ásbjörns og einnig fastamaður í unglingalandsliðunum.

Sverrir á 19 leiki fyrir yngri landsliðin frá U15 og upp í U19.


Slapp
banner
banner