Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
banner
   sun 12. apríl 2026 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Verður lið Liverpool svona á næsta tímabili?
Salah er að yfirgefa félagið.
Salah er að yfirgefa félagið.
Mynd: EPA
Það verða breytingar hjá Liverpool fyrir næsta tímabil en yfirstandandi tímabil skráist sem mikil vonbrigði.

Mirror ákvað að skoða það hvernig Liverpool gæti stillt upp á næsta tímabili.

Það er nú þegar ljóst að Mohamed Salah og Andy Robertson munu yfirgefa félagið í sumar. Hlutverk þeirra hefur farið minnkandi á þessu tímabili.

Þá er einnig staðfest að franski miðvörðurinn Jérémy Jacquet mun ganga í raðir félagsins.

Mirror spáir því að Liverpool muni kaupa Yankuba Minteh frá Brighton í stað Salah og að Eduardo Camavinga komi frá Real Madrid til að hrista upp í hlutunum á miðsvæðinu. Hér fyrir neðan má sjá liðinu sem þeir stilltu upp.

Svo er spurning hver mun stýra þessu liði en framtíð Arne Slot er í óvissu.
Slapp
banner
banner