Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
banner
   mán 13. apríl 2026 12:30
Kári Snorrason
Býst við fyrirliðanum aftur eftir nokkra leiki
Fagnar marki sínu í stórsigri Keflavíkur á HK í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar í fyrra.
Fagnar marki sínu í stórsigri Keflavíkur á HK í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Frans Elvarsson, fyrirliði Keflavíkur, var ekki í leikmannahóp liðsins er liðið mætti KR á Meistaravöllum í gær. Hann var sömuleiðis utan hóps í leik Keflavíkur gegn Grindavík í Mjólkurbikarnum um þar síðustu helgi.

„Hann er að koma til, fékk aðeins í hnéð. En verður vonandi kominn eftir nokkra leiki,“ sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, í viðtali eftir leik í gær.

Frans, sem er 35 ára gamall, er reynslumesti leikmaður leikmaður Keflavíkur en hann hefur spilað með liðinu frá 2011.

Í leik gærdagsins voru Keflvíkingar með 2-1 forystu þegar fjórar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. En á augabragði sneri KR taflinu við og enduðu leikar 3-2 fyrir Vesturbæingum.

Keflavík mætir Fram í Úlfarsárdal næstkomandi föstudag í 2. umferð Bestu deildarinnar.
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Slapp
banner
banner