Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
   mán 13. apríl 2026 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ekki í uppáhaldi á Íslandi en elskaður á Mallorca
Vedat Muriqi.
Vedat Muriqi.
Mynd: EPA
Vedat Muriqi er svo sannarlega ekki í uppáhaldi hjá Íslendingum eftir að hafa skorað þrennu með landsliði Kosóvó gegn Íslandi í Þjóðadeildinni í fyrra.

Hann sá til þess að Ísland féll niður í B-deildina.

En á Mallorca er þessi öflugi sóknarmaður elskaður. Í gær bætti hann met Samuel Eto'o hjá félaginu er hann varð markahæsti leikmaður Mallorca í La Liga.

Hann skoraði tvisvar gegn Rayo Vallecano í gær og er þar með búinn að taka fram úr Eto'o.

Muriqi hefur í heildina skorað 55 mörk í spænsku úrvalsdeildinni fyrir Mallorca.
Slapp
banner
banner