Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   mán 13. apríl 2026 16:00
Elvar Geir Magnússon
Slot hefur trú og bendir á heimavallartölfræði undir hans stjórn
Arne Slot, stjóri Liverpool.
Arne Slot, stjóri Liverpool.
Mynd: EPA
Það er heldur betur verk að vinna fyrir Liverpool á morgun þegar liðið tekur á móti Paris St-Germain í Meistaradeildinni. Frakklandsmeistararnir unnu 2-0 sigur í fyrri leiknum.

Sigur PSG í þeim leik hefði getað orðið talsvert stærri.

„Við höfum oft sýnt það í stórum leikjum á þessu tímabili að við getum framkvæmt frábæra frammistöðu. Við höfum einnig sýnt slæma hlið og ég er meðvitaður um það," segir Slot.

„Í 49 heimaleikjum undir minni stjórn höfum við 36 sinnum skorað tvö mörk eða meira. Já ég geri mér grein fyrir því að þessir 49 leikir hafa ekki allir verið gegn PSG. Við höfum trú á því að við getum framkvæmt sérstaka hluti á morgun en við þurfum að vera upp á okkar allra besta til að ná því. Við erum að keppa gegn Evrópumeisturunum sem gerir verkefnið erfiðara en ekki ómögulegt."
Slapp
banner
banner