Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
Óskar Hrafn: Þú hefur margt fyrir þér í því
Stefán Árni: Unun að fá að deila velli með honum
Hemmi ósáttur: Brandari hvað Finnur og Ástbjörn komast upp með í 90 mínútur
Bryndís Rut hreinskilin eftir stórt tap: „Markmiðið er að halda okkur í deildinni“
Keflavík rúllaði yfir Tindastól – „Geggjað að taka svona sigur“
Hetjan Hallgrímur æfði ekkert í vikunni: Ákvað að svara þegar ég skoraði
Haddi: Róar taugarnar hjá mér
Siggi Höskulds lýsir vonbrigðunum: Nei það er ekki hægt
Gunnar Heiðar ósáttur eftir sigur: Er ekkert eðlilega óánægður með þetta
Nenad: Ég ætla ekki að tjá mig
Jóhann Birnir ósáttur með rauða spjaldið - „Fannst hann bara sækja brotið"
Venni: Ég var aldrei í rónni
Elfar Árni: Spennandi að sjá hvort einhver nýr verði á bekknum í næsta leik
Modoumatarr frá Stokkhólmi: Rólegt líf á Húsavík.
Maggi svekktur: Þeir eru með hörkuhóp
Davíð Smári: Svo sem hægt að kenna dómaranum um
Damir: Gekk betur þegar við föttuðum það
„Smá högg í vetur þegar ég var ein af þeim elstu 22 ára"
„Sigurmark í lokin gerir þetta ennþá sætara“
Mist lagði upp sigurmarkið - „Þetta var nákvæm hreinsun“
   fim 14. júlí 2022 19:50
Elvar Geir Magnússon
Alexandra um dauðafærið: Ætli ég fari ekki aðeins með þetta á koddann í kvöld
Icelandair
Alexandra Jóhannsdóttir í leiknum gegn Ítölum
Alexandra Jóhannsdóttir í leiknum gegn Ítölum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var stutt á milli í þessu þegar Ísland og Ítalía gerðu 1-1 jafntefli í annarri umferð Evrópumótsins í dag.

Lestu um leikinn: Ítalía 1 -  1 Ísland

Ísland leiddi í hálfleik, 1-0, eftir mark Karólínu Leu Vilhjálmsdóttir, en Ítalír jöfnuðu eftir rúman klukkutíma. Ítalska liðið gat vel gert út um leikinn ef það hefði ekki verið fyrir Söndru Sigurðardóttur í markinu.

„Pirrandi að hafa fengið þetta mark á sig, það er svona fyrsta sem kemur upp í hausinn á manni," sagði Alexandra Jóhannsdóttir, sem var að spila sinn annan leik á stórmóti fyrir Ísland.

„Hann var smá kaflaskiptur, þær kannski meira með boltann og betri aðilinn. Það er svosem ekkert skrítið, við skorum á þriðju mínútu og augjóslega fer maður að halda eftir það."

„Já og nei, mér fannst við halda þeim ágætlega frá markinu okkar í fyrri hálfleik og svo eftir að þær skoraði og við fórum að stíga ofar þá opnaðist meira fyrir þær."

„Þetta er enn í okkar höndum. Við höfum ekki enn tapað leik og það gera sér ekki allir grein fyrir því. Þetta eru engar smáþjóðir sem við erum að spila við. Tvö stig og enn allt opið."


Alexandra kom inná sem varamaður í síðari hálfleiknum og kom sér í dauðafæri eftir aukaspyrnu en skot hennar lak framhjá stönginni. Ítalir jöfnuðu aðeins mínútu síðar. Hún segir að það þýðir ekkert að grenja mikið meira yfir þessu og nú sé bara að rífa sig í gang.

„Já, ætli ég fari ekki aðeins með þetta á koddann í kvöld og svo getur maður ekkert verið að grenja mikið meira yfir þessu. Það er bara að rífa sig í gang og næsti leikur, það er ekkert auðveldari andstæðingur. Ég má svekkja mig í kvöld og svo verð ég að rífa mig í gang," sagði hún ennfremur en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Slapp
banner
banner
banner