Hákon Arnar Haraldsson lék sinn fyrsta leik með varaliði FC Kaupmannahöfn í 2-1 sigri á Nordsjælland í dag.
Hinn 16 ára gamli Hákon kom til FCK frá ÍA í sumar.
Hinn 16 ára gamli Hákon kom til FCK frá ÍA í sumar.
Hákon er í unglingaliði FCK en hann kom inn á sem varamaður á 85. mínútu í leiknum í dag.
Nicklas Bendtner, fyrrum framherji Arsenal, spilaði allan leikinn í dag og lagði upp sigurmark FCK.
Bendtner samdi við FCK í haust en hann hefur ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliðinu hjá aðalliðinu ennþá.
Athugasemdir