„Tímabilið leggst bara vel í okkur Leiknismenn. Erum búnir að ná að æfa vel og erum klárir í mótið," segir Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari Leiknis, um tímabilið sem er framundan.
Leikni er spáð níunda sæti Lengjudeildarinnar en Brynjar segir að spáin komi ekki á óvart. „Nei, í rauninni ekki miðað við síðasta tímabíl og við erum með ungt lið í enduruppbyggingu."
Leikni er spáð níunda sæti Lengjudeildarinnar en Brynjar segir að spáin komi ekki á óvart. „Nei, í rauninni ekki miðað við síðasta tímabíl og við erum með ungt lið í enduruppbyggingu."
Skemmtilegt að taka að sér þetta verkefni
Brynjar Björn tók við stjórnartaumunum hjá Leikni í vetur. Hvernig hefur verið fyrir þig að koma inn í félagið?
„Það hefur verið skemmtilegt að taka að sér þetta krefjandi verkefni hjá Leikni og skemmtilegt að byggja upp og reyna koma félaginu á þann stað sem það vill vera á, sem er að berjast í efri hlutanum."
„Heilt yfir hefur gengið vel í vetur, það hafa nokkrir leikmenn verið í lengri meiðslum og veikindum en við erum líka með efnilega stráka úr 2. flokki sem hafa þá fengið tækifæri á meðan."
Brynjar kveðst vera sáttur með hópinn sem hann er með í höndunum.
„Ég er alveg sáttur við hópinn eins og hann er miðað við þann ramma sem við hjá Leikni þurfum að vinna með. Það hafa ungir og efnilegir leikmenn komið til okkar sem kannski hafa ekki fengið tækifæri annars staðar. Staðan í dag er að það eru 1-2 leikmenn meiddir sem skapar tækifæri fyrir aðra en að sjálfsögðu myndi ég vilja hafa alla heila og klára í fyrsta leik."
Með fullt af hæfileikaríkum leikmönnum
Það má búast við jafnri og spennandi Lengjudeild í sumar, eða hvernig sér Brynjar þetta?
„Ég held að deildin verði jöfn og skemmtileg, það eru auðvitað 2-3 lið sem eru búin að leggja töluvert í sín lið og ákveðin pressa þar á að vera í toppbaráttu," segir Brynjar.
„Markmiðið okkar er klárlega að gera betur en á síðasta tímabili. Við erum í grunninn með ungt og skemmtilegt lið í bland við nokkra reynslumeiri leikmenn."
Að lokum sagði Brynjar:
„Við erum með fullt af hæfileikaríkum leikmönnum og ungum strákum sem verður skemmtilegt að fylgjast með í sumar og ég hvet alla Leiknismenn til að koma og styðja okkur í baráttunni. Það er markviss vinna í gangi að byggja upp lið og hóp hjá Leikni, ekki bara fyrir þetta ár heldur lengra inn í framtíðina þar sem Leiknir er metnaðarfullt félag og vill ná árangri með sínum ungu og efnilegu leikmönnum sem geta verið stolt Breiðholts til næstu ára. Það sem við erum að leggja inn í dag verður grunnurinn að Leikni á næstu árum."



