Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   þri 16. maí 2023 21:01
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Luton fer í úrslitaleik um sæti í úrvalsdeildinni
Mynd: Getty Images

Luton 2 - 0 Sunderland (3-2 samanlagt)
1-0 Gabriel Osho ('10)
2-0 Tom Lockyer ('43)


Sunderland er dottið úr leik í umspilinu um sæti í efstu deild á Englandi eftir 2-0 tap gegn Luton Town í kvöld.

Sunderland vann fyrri leikinn 2-1 á heimavelli en réði ekki við Luton á útivelli.

Gabriel Osho og Tom Lockyer skoruðu mörk heimamanna í fyrri hálfleik.

Liðin áttu jafn mikið af marktilraunum í leiknum en marktilraunir gestanna úr Sunderland sköpuðu litla sem enga hættu, á meðan heimamenn í Luton hefðu getað unnið leikinn með stærri mun miðað við gæði færanna.

Luton mætir annað hvort Middlesbrough eða Coventry í úrslitaleik umspilsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner