Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   lau 16. júlí 2022 18:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kompany: Verðum að undirbúa tíma án Cornet
Mynd: Getty Images
Það stefnir allt í að Maxwel Cornet sé á förum frá Burnley en nýr stjóri liðsins, Vincent Kompany, er að byggja upp nýtt lið.

Samkvæmt heimildum The Athletic þykir Everton líklegur áfangastaður fyrir Cornet.

Burnley vann Shrewsbury 3-1 í æfingaleik í gær en Cornet var ekki í hópnum. Kompany tjáði sig um leikmanninn eftir leikinn.

„Ég veit ekki hversu nálægt því hann er að fara, það er ekkert leyndarmál að nokkur félög á eftir honum, nokkur félög hafa gert gott tilboð. Við verðum að undirbúa tíma án hans og það er það sem við erum að gera," sagði Kompany.

„Ég er ekki að segja að hann sé farinn, hann hefur fengið tilboð."


Athugasemdir
banner
banner
banner