Heimild: Þungavigtin
Leikur Vals og ÍBV hefst klukkan 16:30 í dag, leiknum var flýtt þar sem einungis er siglt til Vestmannaeyja frá Þorlákshöfn og ef hann hefði farið fyrr af stað hefðu Eyjamenn ekki komist til síns heima í kvöld.
Upphaflega átti leikurinn að hefjast klukkan 18:00.
Upphaflega átti leikurinn að hefjast klukkan 18:00.
Sigurbjörn Hreiðarsson, Bjössi Hreiðars, er goðsögn hjá Val og ræddi hann um leiktímann í Þungavigtinni í dag.
„Ég er mjög pirraður yfir því að það sé búið að færa Val - Vestmannaeyjar framar. Ég næ ekki þessum leik, ég verð í vinnu, maður þarf að vinna sína vinnu og ég næ ekki fyrri hálfleiknum og ég er pirraður yfir því," sagði Bjössi í þættinum.
„Það á bara að vera með þetta á morgun," sagði Bjössi. Heyrst hefur að það sé árshátíð á Hlíðarenda á morgun og því sé t.d. búið að færa oddaleik Vals og Keflavíkur í Bónus deildinni fram á sunnudag.
„Í hvaða öðru landi eða deild er einhver að spá í það hvenær liðið kemst heim til sín eftir leik? Það er aldrei. Leikjum er ekkert flýtt í Meistaradeildinni svo menn komast fyrr heim," sagði Mikael Nikulásson í þættinum.
„Við erum að tala um 2. umferð deildarinnar, tala um að mynda einhverja stemningu, Valur er að spila annan heimaleikinn sinn. Hvað haldiði að það verði margir á vellinum? Menn eru að reyna mynda einhverja stemningu fyrir leik," sagði Bjössi.
2. umferð Bestu deildarinnar
16:30 Valur-ÍBV (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:30 KR-Þór (Meistaravellir)
17:30 KA-Víkingur R. (Greifavöllurinn)
18:00 Fram-Keflavík (Lambhagavöllurinn)
18:00 Breiðablik-ÍA (Kópavogsvöllur)
20:00 Stjarnan-FH (Samsungvöllurinn)



