Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   fös 17. apríl 2026 13:12
Elvar Geir Magnússon
Guardiola: Ef við töpum þá er þetta búið
Pep Guardiola og Mikel Arteta í góðum gír.
Pep Guardiola og Mikel Arteta í góðum gír.
Mynd: EPA
Manchester City og Arsenal mætast í stærsta leik tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn.

Arsenal er á toppnum með 70 stig, sex stigum meira en Man City sem er í öðru sæti og á að auki leik til góða.

„Ef við töpum þá er þetta búið," sagði Pep Guardiola, stjóri Manchester City, á fréttamannafundi.

Hann var spurður að því hvort hann hefði gaman að því að horfa á Arsenal spila en leikstíll liðsins hefur verið stórt umræðuefni í gegnum allan veturinn.

„Fólk gerir gríðarlegar kröfur; fjölmiðlar, stuðningsmenn og allir. Ég hef gaman að því að horfa á leiki Arsenal," segir Guardiola.

Hann talar um að sjálfstraust sé gríðarlega stór þáttur á lokasprettinum.

„Þetta snýst um sjálfstraust sem er ótrúlega stór þáttur. Ef maður gæti keypt sjálfstraust út í búð myndi ég ger það samstundis. Það er einn mikilvægasti þátturinn í fótbolta."

Þá greindi Guardiola frá því að Rúben Dias væri enn fjarri góðu gamni og gæti ekki spilað á sunnudag. Nico O'Reilly er hinsvegar góður og klár í slaginn.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 37 25 7 5 69 26 +43 82
2 Man City 37 23 9 5 76 33 +43 78
3 Man Utd 37 19 11 7 66 50 +16 68
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 37 13 17 7 57 53 +4 56
7 Brighton 37 14 11 12 52 43 +9 53
8 Chelsea 37 14 10 13 57 50 +7 52
9 Brentford 37 14 10 13 54 51 +3 52
10 Sunderland 37 13 12 12 40 47 -7 51
11 Newcastle 37 14 7 16 53 53 0 49
12 Everton 37 13 10 14 47 49 -2 49
13 Fulham 37 14 7 16 45 51 -6 49
14 Leeds 37 11 14 12 49 53 -4 47
15 Crystal Palace 37 11 12 14 40 49 -9 45
16 Nott. Forest 37 11 10 16 47 50 -3 43
17 Tottenham 37 9 11 17 47 57 -10 38
18 West Ham 37 9 9 19 43 65 -22 36
19 Burnley 37 4 9 24 37 74 -37 21
20 Wolves 37 3 10 24 26 67 -41 19
Breiðablik - KR á föstudag
Slapp
banner