Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   fös 17. apríl 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England um helgina - Stærsti leikur tímabilsins, Man Utd á Brúnni og borgarslagur í Liverpool
Man City og Arsenal mætast í svakalegum titilbaráttuslag á Etihad
Man City og Arsenal mætast í svakalegum titilbaráttuslag á Etihad
Mynd: EPA
Liverpool heimsækir Everton
Liverpool heimsækir Everton
Mynd: EPA
Manchester City og Arsenal mætast í stærsta leik tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Arsenal er á toppnum með 70 stig, sex stigum meira en Man City sem er í öðru sæti.

Man City á leik til góða og þess vegna er þetta gríðarlega mikilvægur leikur í titilbaráttunni.

Leikurinn er spilaður klukkan 15:30 á Etihad-leikvanginum og er í beinni útsendingu á SýnSport.

Þetta er ekki eini stórleikur umferðarinnar því Chelsea tekur á móti Manchester United á Stamford Bridge. Bæði lið eru í baráttu um Meistaradeildarsæti, en tap hjá Chelsea myndi minnka líkurnar verulega á því að enda meðal fimm efstu.

Tottenham, sem er í fallsæti, tekur á móti Brighton í Lundúnum og þá mætast Everton og Liverpool í borgarslag á Hill Dickinson-leikvanginum í Liverpool. Þetta er mjög mikilvægur leikur fyrir bæði lið sem eru bæði í baráttu um Meistaradeildarsæti.

Leikir helgarinnar:

Laugardagur:
11:30 Brentford - Fulham
14:00 Leeds - Wolves
14:00 Newcastle - Bournemouth
16:30 Tottenham - Brighton
19:00 Chelsea - Man Utd

Sunnudagur:
13:00 Nott. Forest - Burnley
13:00 Everton - Liverpool
13:00 Aston Villa - Sunderland
15:30 Man City - Arsenal
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 37 25 7 5 69 26 +43 82
2 Man City 36 23 8 5 75 32 +43 77
3 Man Utd 37 19 11 7 66 50 +16 68
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 37 14 11 12 52 43 +9 53
8 Brentford 37 14 10 13 54 51 +3 52
9 Sunderland 37 13 12 12 40 47 -7 51
10 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
11 Newcastle 37 14 7 16 53 53 0 49
12 Everton 37 13 10 14 47 49 -2 49
13 Fulham 37 14 7 16 45 51 -6 49
14 Leeds 37 11 14 12 49 53 -4 47
15 Crystal Palace 37 11 12 14 40 49 -9 45
16 Nott. Forest 37 11 10 16 47 50 -3 43
17 Tottenham 36 9 11 16 46 55 -9 38
18 West Ham 37 9 9 19 43 65 -22 36
19 Burnley 37 4 9 24 37 74 -37 21
20 Wolves 37 3 10 24 26 67 -41 19
Slapp
banner
banner