Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
banner
   fös 17. apríl 2026 11:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spilaði ekkert og fékk ekki að æfa með liðinu - „Þetta var mjög erfitt andlega"
Mælir ekki með skrefinu til Króatíu
Spilaði ekkert og fékk ekki að æfa með liðinu.
Spilaði ekkert og fékk ekki að æfa með liðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gerir þriggja ára samning við KA.
Gerir þriggja ára samning við KA.
Mynd: KA
'Vildi fá að hafa gaman af íþróttinni sem ég elska'
'Vildi fá að hafa gaman af íþróttinni sem ég elska'
Mynd: Raggi Óla
Danijel Djuric fékk ekki mörg tækifæri í Króatíu heldur.
Danijel Djuric fékk ekki mörg tækifæri í Króatíu heldur.
Mynd: KA
Oliver Heiðarsson skrifaði síðasta sumar undir samning hjá króatíska félaginu Lokomotiva Zagreb. Hann kláraði tímabilið með ÍBV og varð formlega leikmaður Lokomotiva í janúar og fékk þá leikheimild.

Það fór svo að Oliver spilaði ekki sekúndu með liðinu og varla hægt að segja að hann hafi fengið að æfa með liðinu.

Félagið nýtti sér gagnagrunn í leikmannaleit sinni og í honum skoraði Oliver hátt. Þjálfari liðsins hafði þó aðrar hugmyndir og var Oliver ekki í myndinni. Hann ræddi við Fótbolta.net um tímann í Króatíu.

„Ég hef ekki fengið að æfa almennilega með liði í langan tíma og ég vildi komast í gott umhverfi þar sem ég fengi að sýna það sem ég get," segir Oliver um ákvörðunina að fara til Íslands og semja við KA.

Varstu ekkert að æfa með liðinu?

„Ég fór í aðgerð beint eftir tímabilið á Íslandi, kom til Króatíu og var þá nýbyrjaður að skokka. Eftir mánuð gat ég svo æft á fullu en ég var ekki í plönunum hjá þjálfaranum. Ég æfði með liðinu þegar hann þurfti leikmenn út af því ð aðrir voru nýbúnir að spila, kannski einu sinni í viku, en restina af tímanum var ég bara í reit með 3-4 öðrum eða á hlaupaæfingum."

„Því miður ertu ekki í mínum plönum og vonandi breytist það einhvern tímann ef við fáum einhvern æfingaleik. Það voru svörin sem ég fékk. En það kom enginn æfingaleikur og ég var bara því miður ekki í plönum þjálfarans."

„Þjálfarinn var fenginn til félagsins daginn eftir að ég skrifaði undir. Ég skrifaði undir í sumarglugganum og hann kom inn degi seinna. Svo kom ég um hálfu ári seinna í janúarglugganum."


Þegar liðið var að æfa, varst þú þá bara að skokka?

„Ég var annað hvort í útihlaupum eða einn í tækniæfingum. Ef það voru fleiri utan hóps þá vorum við í reit eða sendingaræfingum. Þetta var mjög erfitt andlega, ég reyndi að vera jákvæður, en þegar ég var búinn að vera í þessu í einn og hálfan mánuð var ég kominn með nóg og vildi koma heim - vildi fá að hafa gaman af íþróttinni sem ég elska."

Oliver var í hóp í þremur leikjum með Lokomotiva á tíma sínum hjá félaginu. En í síðustu sex leikjum var hann utan hóps.

„Á þeim tímapunkti var ég að æfa meira með liðinu. En núna, þegar ég horfi til baka, þá var það bara út af meiðslum. Þjálfaranum vantaði leikmenn á bekkinn. Ég fékk einu sinni að hita upp sem varamaður, það var bara af því hann hafði bara fimm til taks á bekknum."

Hvernig leið þér í Króatíu?

„Mjög vel. Zagreb er frábær borg, mjög heitt og fólkið frábært. Strákarnir í liðinu og allir tóku vel á móti mér. (Ég var sáttur við allt) nema spiltímann og ég hefði viljað æfa aðeins meira."

Á síðustu árum hafa þeir Logi Hrafn Róbertsson, Danijel Dejan Djuric og Oliver Heiðarsson farið til Króatíu en ekki fengið að spila mikið. Danijel og Logi fengu þó eitthvað að spila á meðan Oliver fékk ekki að sjá völlinn.

Út frá þinni reynslu og því sem þú hefur séð, myndir þú mæla með þessu skrefi?

„Eiginlega ekki, en ef þú færð traustið frá þjálfaranum þá auðvitað (myndi ég mæla með því). Án þess að hafa skýr skilaboð um að þú sért að fara spila eitthvað af viti, þá mæli ég ekki með þessu," segir Oliver. Hann verður líklega í hóp hjá KA þegar liðið tekur á móti Víkingi í Bestu deildinni í dag.

Hægt er að hlusta á viðtalið í spilaranum hér að neðan.
Oliver: Keflavík tilkynnti mér að ég væri laus
Slapp
banner
banner