Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   sun 17. júlí 2022 22:48
Brynjar Ingi Erluson
4. deild: KFK skoraði sex í seinni hálfleik
Afríka tapaði tíunda leik sínum í sumar
Afríka tapaði tíunda leik sínum í sumar
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Afríka 0 - 6 KFK
0-1 Oliver Helgi Gíslason ('59 )
0-2 Hubert Rafal Kotus ('69 )
0-3 Jamal Michael Jack ('77 )
0-4 Oliver Helgi Gíslason ('79 )
0-5 Hubert Rafal Kotus ('80 )
0-6 Jóhann Steinar Sigurðarson ('85 )

KFK vann öruggan 6-0 sigur á Afríku í B-riðli 4. deildar karla í kvöld er liðin mættust á OnePlus-vellinum á Álftanesi.

Síðast þegar þessi lið mættust vann KFK 17-0 sigur á Afríku en þegar flautað var til hálfleiks í kvöld var staðan markalaus.

KFK bætti upp fyrir það með því að skora sex mörk. Oliver Helgi Gíslason og Hubert Rafal Kotus skoruðu báðir tvö mörk og þá komust þeir Jamal Michael Jack og Jóhann Steinar Sigurðarson einnig á blað.

KFK er áfram á toppnum með 26 stig, þremur stigum meira en Tindastóll sem er í öðru sætinu. Afríka er án stiga á botninum.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner