Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   mið 18. mars 2026 16:45
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Barcelona og Newcastle: Ein breyting hjá hvoru liði
Nick Wolttemade og Sandro Tonali á æfingu á Nývangi í gær.
Nick Wolttemade og Sandro Tonali á æfingu á Nývangi í gær.
Mynd: EPA
Lamine Yamal.
Lamine Yamal.
Mynd: EPA
16-liða úrslitunum í Meistaradeildinni lýkur í kvöld með fjórum leikjum.

Fyrsti leikur kvöldsins er milli Barcelona og Newcastle sem fram fer í Barcelona. Newcastle spilaði vel í fyrri leiknum en Lamine Yamal jafnaði metin í 1-1 í blálokin með marki úr vítaspyrnu.

Hvort lið gerir eina breytingu á byrjunarliði sínu frá fyrri leiknum. Eric Garcia kemur inn í vörn Börsunga í stað Ronald Araújo sem sest á bekkinn. Hjá Newcastle kemur Anthony Gordon inn fyrir Will Osula sem sest á bekkinn.

Lamine Yamal er meðal byrjunarliðsmanna hjá Barcelona og Sandro Tonali miðjumaður Newcastle, sem var veikur í leiknum gegn Chelsea um helgina, er klár í slaginn.

Byrjunarlið Barcelona: Barcelona starting XI: J.Garcia, Cancelo, E.Garcia, Cubarsi, Martin, Pedri, Bernal, Lopez, Yamal, Lewandowski, Raphinha,

(Varamenn: Szczesny, Araujo, Gavi, Ferran, Rashford, Casado, Olmo, Roony, Kochen, Cortes, Espart, Tommy)

Byrjunarlið Newcastle: Ramsdale, Trippier, Thiaw, Burn, Hall, Tonali, Ramsey, Joelinton, Elanga, Gordon, Barnes

(Varamenn: Pope, Ruddy, Harris, Botman, Wissa, Osula, Livramento, J.Murphy, Woltemade, Willock, A.Mutphy, Neave)

Meistaradeildin
17:45 Barcelona - Newcastle (1-1)
20:00 Liverpool - Galatasaray (0-1)
20:00 Bayern - Atalanta (6-1)
20:00 Tottenham - Atletico Madrid (2-5)



Athugasemdir
banner