Í kvöld klárast 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar áfram með fjórum áhugaverðum leikjum.
Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.
Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.
Gylfi Tryggvason
Barcelona 3 - 1 Newcastle (1-1)
Newcastle eru öðruvísi skepna undir ljósunum, á kvöldin, á heimavelli. Ekkert af þessu á við í dag og þeir mæta í síðdegisleikinn í Barcelona í veseni. Hanga samt einhvern veginn inni í leiknum lengi vel. Raphinha er að hóta þrennu annan leikinn í röð.
Bayern München 3 - 1 Atalanta (6-1)
Fór í golf með Þjóðverja um daginn. Vel erfiður gæi.
Liverpool 2 - 0 Galatasaray (0-1)
Liverpool ætti að vinna þennan leik svona 5-0 en Liverpool er ekki Liverpool þessa dagana. Samt alltaf mínir menn. Slot in, klárar þessa Meistaradeild og svo má Alonso koma.
Tottenham 1 - 2 Atletico (2-5)
Atletico eru hreinlega ekki nógu lélegir til að ná að forðast sigur gegn þessu ömurlega Tottenham liði. Balon Tu D’Or er ömurlegur fótbolti. Tudor out.
Óskar Smári Haraldsson
Barcelona 2 - 0 Newcastle
Eins mikið og maður heldur með Newcastle í þessari viðureign þá held ég að Barca klári þetta einvígi heima. Raphinha og Lewa klára þessa viðureign í hörkuleik.
Bayern München 2 - 1 Atalanta
Leikur sem er óþarfi að spila. Bayern komnir áfram áður en flautað er á. Atalanta slysa þó inn einhverju marki í lokin eftir frábæra maður á mann pressu úr markspyrnu hjá Bayern. Eitthvað um markmannsvandamál hjá Bayern þessa stundina - ég sver það að vinur minn Óli Grétar Óskarsson, fyrrum markmaður Tindastóls, gæti verið í rammanum hjá Bayern og þeir myndu samt vinna.
Liverpool 1 - 1 Galatasaray
Já, ég ætla spá því að Liverpool detti út gegn Galatasaray. Vill ég það? Nei. Vona ég það? Smá. Maður var svo dekraður á sínum tíma með Jurgen Klopp sem þjálfara að maður eiginlega finnur til með Slot. Hins vegar er erfitt að finna til með honum þegar meðvirkni hans á ákveðnum leikmönnum sem fá tækifæri viku eftir viku tekur engan enda. Þolinmæði að þrotum komin og kallar maður eftir breytingum.
Tottenham 0 - 4 Atletico Madrid
Talandi um þjálfara sem maður hefur lítinn húmor fyrir: Elsku, elsku Igor Tudor. Að taka ákvörðun að setja Kinsky í markið og reyna verja sjálfan sig með að taka hann út af eftir 17 mínútur í fyrri leiknum er fyrir mér heigulskapur. Tottenham er í alvöru vandræðum og Tudor er ekki svarið við þeim vanda. Hver einasti leikmaður Atletico myndi hlaupa í gegnum vegg fyrir Simone á meðan leikmönnum Tottenham myndi ekki detta það í hug fyrir Tudor. 0-4 rúst og Tudor verður rekinn beint eftir leik.
Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Barcelona 2 - 1 Newcastle
Þetta verður hörkuleikur. Var verulega heillaður af Newcastle í fyrri leiknum og ég held að þeir standi í Börsungum í kvöld. Þetta verður dramatík, eins og í fyrri leiknum, en Barcelona klárar þetta og fer áfram.
Bayern München 3 - 0 Atalanta
Maður stillir allavega ekki inn á þennan leik. Bayern fer létt í gegnum þetta og 16 ára strákurinn heldur hreinu.
Liverpool 3 - 0 Galatasaray
Evrópukvöldin á Anfield eru oft yfirþyrmandi fyrir andstæðinginn. Arne Slot er umdeildur en hann fer í gegnum þetta einvígi. Ætli Salah skori ekki hérna?
Tottenham 0 - 2 Atletico Madrid
Síðasti leikur Igor Tudor með Tottenham. Ryan Mason verður svo mættur.
Staðan í heildarkeppninni:
Óskar Smári - 22
Fótbolti.net - 16
Gylfi Tryggva - 15
Athugasemdir




