Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
banner
   mið 18. mars 2026 22:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Lærisveinn Heimis hetjan kvöldsins
Finn Azaz skoraði sigurmark Southampton.
Finn Azaz skoraði sigurmark Southampton.
Mynd: Southampton
Southampton 1 - 0 Norwich
1-0 Finn Azaz ('25 )

Það var einn leikur í Championship-deildinni, næst efstu deild Englands, í kvöld.

Southampton mætti Norwich og þar var það eitt mark sem skildi liðin að.

Finn Azaz, lærisveinn Heimis Hallgrímssonar í írska landsliðinu, var hetjan því hann gerði sigurmark Southampton eftir 25 mínútna leik.

Southampton hefur verið á mjög góðu skriði að undanförnu og er komið upp í umspilssæti þegar átta umferðir eru eftir. Dýrlingarnir fóru upp Wrexham í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner