Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
Ólafur Ingi: Einhver narratíva þarna úti sem við erum ekki sammála
Danni Hafsteins: Ég vil spila alla leiki
Lárus Orri: Okkur vantar drápseðli
Sölvi Geir: Hann er búinn að sokka alla sem voru að gagnrýna hann
Amin Cosic hissa: Klobbaði einn og svo annan, bjóst svo við seinna gula þegar ég var rifinn niður
Jói Kalli ósáttur: Engin regla um hvað boltinn þarf að vera lengi í leik eftir að hagnaði er beitt
Þorri Stefán: Ég hef verið kallaður Joe Gomez Fram-liðsins
Rúnar Kristins: Við höfum fengið fyrirspurnir um Magnús
Davíð Helgi: Búinn að halda þessu fagni leyndu
Haraldur Freyr: Of langur tími til þess að 'suffera'
Enginn feluleikur hjá Hadda - „Ef þú ert ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilarðu ekki í KA“
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
   mið 08. apríl 2026 14:18
Elvar Geir Magnússon
Hemmi segist elska Brazell - „Alltaf eitthvað blaður og bull“
Hermann Hreiðarsson.
Hermann Hreiðarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Chris Brazell, aðstoðarþjálfari Vals.
Chris Brazell, aðstoðarþjálfari Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ýmsar sögusagnir hafa verið í umræðu- og hlaðvarpsþáttum um samstarf Hermann Hreiðarssonar þjálfara Vals og hans aðstoðarþjálfara, Chris Brazell. Sögusagnir hafa verið um valdabaráttu og jafnvel að samband þeirra væri stirt og lítil samskipti milli þeirra.

Hermann vísar þessum sögusögnum til föðurhúsanna.

„Ég elska Chris. Hann er pund fyrir pund besti aðstoðarmaður sem ég hef starfað með. Úti á velli er hann 'second to none'. Samstarfið er stórkostlegt," segir Hermann.

„Menn geta bullað hægri, vinstri. Það skiptir engu máli. Við vitum hver staðan er á æfingasvæðinu. Allt starfsliðið og starfsumhverfið er algjörlega geggjað. Í teyminu erum við ógnarsterkir og það eru forréttindi að vinna á þessum vinnustað."

„Það er alltaf eitthvað blaður og bull. Einhverjir lifa og hrærast í því að bulla og þá verður bara að hafa það. Þetta breytir ekkert því sem við gerum. Við vitum hvaða gæði eru í okkar þjálfarateymi og hjá leikmönnum í klefanum."

Fótbolti.net ræddi við Hermann á kynningarfundi Bestu deildarinnar og má sjá viðtalið í heild hér að ofan. Þar ræðir hann meðal annars um tapið gegn KR í bikarnum, leikinn gegn Þór í fyrstu umferð Bestu deildarinnar og stöðuna á leikmannahópnum.

Fyrsta umferð Bestu deildarinnar:

föstudagur 10. apríl
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)

sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Slapp
banner
banner
banner