Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
Ólafur Ingi: Einhver narratíva þarna úti sem við erum ekki sammála
Danni Hafsteins: Ég vil spila alla leiki
Lárus Orri: Okkur vantar drápseðli
Sölvi Geir: Hann er búinn að sokka alla sem voru að gagnrýna hann
Amin Cosic hissa: Klobbaði einn og svo annan, bjóst svo við seinna gula þegar ég var rifinn niður
Jói Kalli ósáttur: Engin regla um hvað boltinn þarf að vera lengi í leik eftir að hagnaði er beitt
Þorri Stefán: Ég hef verið kallaður Joe Gomez Fram-liðsins
Rúnar Kristins: Við höfum fengið fyrirspurnir um Magnús
Davíð Helgi: Búinn að halda þessu fagni leyndu
Haraldur Freyr: Of langur tími til þess að 'suffera'
Enginn feluleikur hjá Hadda - „Ef þú ert ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilarðu ekki í KA“
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
   mið 08. apríl 2026 15:30
Elvar Geir Magnússon
Jói Kalli: Spurning hvort það verði Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn
FH-ingar stefna á efri hlutann.
FH-ingar stefna á efri hlutann.
Mynd: Fótbolti.net
Mynd: FH
Jóhannes Karl Guðjónsson og lærisveinar í FH hefja leik í Bestu deildinni á sunnudaginn þegar þeir heimsækja ÍBV í Vestmannaeyjum. Jói Kalli spjallaði við Fótbolta.net á kynningarfundi deildarinnar í dag.

„Við erum nokkuð góðir, allir heilir og klárir í slaginn," segir Jói Kalli. Er hann búinn að fylgjast vel með veðurspánni í aðdraganda leiksins?

„Já veðrið hefur verið skrítið undanfarið en næstu dagar virðast ætla að vera nokkuð rólegir. Við búumst við fínum degi í Vestmannaeyjum. Það er bara spurning hvort við þurfum að sigla frá Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn. Undirbúningurinn hjá okkur verður flottur."

Skýrt markmið hjá FH
FH hefur verið frekar neðarlega í spám og fótboltalýsandinn Hörður Magnússon talaði um það á RÚV að menn væru að vanlesa í styrk FH-liðsins. Tekur þjálfarinn undir það?

„Ég ætla mér ekkert að ofgreina þessar spár eitthvað. Ég er með leikmannahópinn fyrir framan mig á nánast hverjum degi. Þetta er ekki okkar markmið að enda í þessu sæti, við ætlum okkur meira en það. Við ætlum okkur að vera í efra umspilinu, það er klárlega okkar markmið. Við sem hópur erum algjörlega klárir í það."

„Við ætlum okkur stóra hluti í sumar og ætlum okkur að vera spennandi. Á sama tíma er verið að breyta aðeins og leikstíllinn breytist að einhverju leyti. Það mun taka einhvern tíma að þróa það en við förum í hvern einasta leik til að vinna hann."

Skörð að fylla í markaskorun
Lykilmenn í sóknarleiknum eru horfnir á braut. Björn Daníel Sverrisson og Sigurður Bjartur Hallsson sem sköpuðu og skoruðu í fyrra eru farnir, hefur Jói Kalli engar áhyggjur af því að fylla í þau skörð?

„Það er leiðinlegt að missa þessa menn, þetta eru frábærir leikmenn sem skoruðu mikið af mörkum. Það þarf alltaf að finna leiðir til að skora mörk í fótbolta og þeir skilja eftir sig skörð. Það er samt ekkert sem við erum að hafa áhyggjur af núna. Við erum að vinna í því sem við höfum fyrir framan okkur. Við skoruðum fjögur mörk (gegn Þór) í bikarnum og hefðum getað skorað fleiri. Ég hræðist það ekki að FH liðið í sumar geti ekki skorað mörk en það verður ekkert auðvelt því það er fullt af góðum liðum í þessari deild."

Fyrsta umferð Bestu deildarinnar:

föstudagur 10. apríl
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)

sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Slapp
banner
banner