Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   mið 08. apríl 2026 15:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ísak nýr fyrirliði FH: Var einn af þeim yngri en orðinn einn sá elsti
Á leið í sitt þriðja tímabil með FH.
Á leið í sitt þriðja tímabil með FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kom frá Danmörku fyrir tímabilið 2024.
Kom frá Danmörku fyrir tímabilið 2024.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísak Óli Ólafsson (2000) er nýr fyrirliði FH. Hann bar fyrirliðabandið í bikarleiknum gegn Þór og er tekinn við hlutverkinu af Birni Daníel Sverrissyni sem lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil.

Hann ræddi við Fótbolta.net á kynningarfundi Bestu deildarinnar, en deildin hefst á föstudag.

„Það er hrikalega mikill heiður að vera fyrirliði FH, við erum nokkrir saman með þetta," segir Ísak sem er á leið í sitt þriðja tímabil í Kaplakrika.

Hann er spenntur að mótið sé að fara af stað. Það hefur aðeins gustað um FH á undirbúningstímabilinu, umræðan ekki alltaf jákvæð, en það bítur ekkert á Ísak.

„Veturinn hefur verið góður, það hefur gustað um á fréttamiðlum og svona, en það hefur ekkert komist inn í hópinn. Mér finnst þetta einhvern veginn óvart hafa gerst, eins og með leikinn gegn Fylki."

„Mér fannst þetta í raun bara þjappa hópnum saman og menn höfðu á köflum bara svolítið gaman af þessu. Það var eins og veðurguðirnir væru að grínast í okkur."


Það hafa orðið talsverðar breytingar á FH í vetur. Yngri leikmenn hafa verið fengnir inn og eldri horfið á brott.

„FH setti stefnu og þeir eru að fylgja henni, það er ekki hægt að segja annað. Þetta eru auðvitað miklar breytingar, en það verður að treysta ferlinu og ég er spenntur fyrir þessu."

„Maður var einn af þeim yngri, en núna er maður einn af þeim elstu. Það er auðvitað skemmtilegt og öðruvísi áskorun."


Hvað væri viðunandi árangur í sumar?

„Við stefnum auðvitað á topp sex, það væri skrítið ef FH myndi ekki gera það. Við þufum að verða betri í hverjum leik, við erum með reynslulítið lið og við munum læra. Ég er spenntur að sjá hvert við getum stefnt þegar líður á sumarið," segir Ísak Óli.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst

1. umferðin í Bestu
föstudagur 10. apríl>
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)

sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Slapp
banner
banner
banner