Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson er búinn að velja byrjunarlið íslenska landsliðsins fyrir stórleikinn gegn Englandi, en leikur liðanna hefst klukkan 16:30 á Laugardalsvelli. Leikurinn er liður í undankeppni HM 2027 og er sögulegur fyrir margar sakir, en fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir bætir hér landsleikjamet Söru Bjarkar Gunnarsdóttur með sínum 146. leik.
Það vekur athygli að Þorsteinn gerir fjórar breytingar á byrjunarliðinu frá síðasta leik. Þær Ída Marín Hermannsdóttir, Emilía Kiær Ásgeirsdóttir, Linda Líf Boama og Diljá Ýr Zomers koma allar inn í liðið. Út fara þær Hildur Antonsdóttir, Thelma Karen Pálmadóttir, Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Sandra María Jessen.
Samkvæmt leikskipulaginu sem kynnt var fyrir stuðningsmönnum fyrr í dag ætlar íslenska liðið að liggja þétt til baka og verjast skipulega gegn sterku liði Englands, sem spilar í dag sinn 500. opinbera landsleik. Diljá Ýr mun falla djúpt til að þétta miðjuna og loka á kanta gestanna, en eldingarhraði þeirra Sveindísar Jane og Lindu Lífar verður okkar helsta vopn í skyndisóknum.
Lestu um leikinn: Ísland 0 - 1 England
Byrjunarliðið
Svona er byrjunarlið Íslands
1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m)
4. Glódís Perla Viggósdóttir (f)
5. Emilía Kiær Ásgeirsdóttir
6. Ingibjörg Sigurðardóttir
8. Alexandra Jóhannsdóttir
9. Diljá Ýr Zomers
17. Ída Marín Hermannsdóttir
18. Guðrún Arnardóttir
19. Sædís Rún Heiðarsdóttir
22. Linda Líf Boama
23. Sveindís Jane Jónsdóttir



