Bjarki Steinn Bjarkason og félagar í Venezia tryggðu sér sigur í Seríu B í kvöld þegar liðið lagði Palermo 2-0 í lokaumferðinni. Liðið endaði með 82 stig, stigi á undan Frosinone sem fylgir liðinu upp í Seríu A.
Bjarki Steinn meiddist í desember og hefur aðeins spilað þrjár mínútur síðan. Hann var á bekknum í kvöld.
Bjarki Steinn meiddist í desember og hefur aðeins spilað þrjár mínútur síðan. Hann var á bekknum í kvöld.
Alex Freyr Elísson spilaði fyrri hálfleikinn í 2-1 sigri NSÍ Runavík gegn HB í færeysku deildinni. NSÍ, sem er undir stjórn Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar, tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu gegn B36 í síðustu umferð.
NSÍ er á toppnum með 20 stig eftir níu umferðir. Liðið er stigi á undan B36 sem á leik til góða.
Gísli Gottskálk Þórðarson er á meiðslalistanum hjá Lech Poznan sem gerði 1-1 jafntefli gegn Arka Gdynia í pólsku deildinni. Lech Poznan er á toppnum með 56 stig eftir 32 umferðir. Liðið er með sjö stigum á undan Gornik Zabrze sem á tvo leiki til góða.
The strongest. A night to remember.#ArancioNeroVerde ?????????? pic.twitter.com/ejb6fEiv4X
— Venezia FC (@VeneziaFC_IT) May 8, 2026




