Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
   fös 08. maí 2026 20:54
Snæbjört Pálsdóttir
Sölvi eftir 6-0 sýningu: Alltof góðir leikmenn á bekknum
Sölvi segir samkeppnina innan hópsins ýta undir frammistöðu leikmanna.
Sölvi segir samkeppnina innan hópsins ýta undir frammistöðu leikmanna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur valtaði yfir Þór, 6-0, í 6. umferð Bestu deildarinnar í kvöld og var þjálfarinn Sölvi Geir Ottesen afar sáttur með frammistöðu sinna manna.

„Bara mjög góð. Við þurftum alveg að hafa fyrir þessu en við vorum bara virkilega góðir í dag. Létum boltann ganga hratt, mikið af hreyfingum og horfum fram á við. Þannig ég er bara virkilega sáttur með þennan sigur.“


Lestu um leikinn: Víkingur R. 6 -  0 Þór

„Það er rosalega auðvelt að koma út í seinni hálfleikinn og finnast eins og verkið sé klárað en þeir komu flottir út í seinni hálfleik líka. Ég er sérstaklega ánægður með það. Við héldum áfram að berja á þeim og spila hraðan fótbolta.“

„Þarft að vera með þetta mindset, getur ekkert verið að gefa eftir þótt staðan sé svona. Sama hvort þú sért 4-0 undir eða 4-0 yfir.“

Sölvi gerði sjö breytingar á byrjunarliðinu frá síðasta leik, nokkrar vegna meiðsla en hann segir hópinn einfaldlega mjög sterkan.

„Vissulega er þetta lúxus vandamál að vera með marga góða leikmenn í stórum hóp. Maður hugsar oft að það eru alltof góðir leikmenn á bekknum eða jafnvel utan hóps.“

Víkingur ætlar sér stóra hluti á tímabilinu.

„Við ætlum okkur langt í öllum keppnum, við ætlum að reyna við báða titlana heima og ná langt í Evrópu.“

„Elías er búinn að vera heitur undanfarið, iðinn við kolann fyrir framan markið og Óskar stóð sig hrikalega vel í dag.“

„Þetta var massíf liðsframmistaða í dag og þá er þjálfarinn yfirleitt sáttastur.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner
banner