Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
Davíð Smári: Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn
Birnir Snær: Reynir mest á hausinn
Arnór Ingvi: Allt á uppleið í KR og í Vesturbænum
Óskar Hrafn: Ber mikla virðingu fyrir körfu- og handboltaliðum
Hemmi: Ég er grautfúll
Gylfi: Mjög góðir þó að staðan hjá þeim er eins og hún er
Sölvi: Þarf að setja meiri pressu á Kára
Jökull: Stuðningsmennirnir eiga meira skilið
   fös 08. maí 2026 20:32
Snæbjört Pálsdóttir
Óskar Bogga: Þetta er bara statement inn í deildina
Óskar Borgþórsson skoraði tvö mörk og lagði upp tvö í 6-0 sigri Víkings.
Óskar Borgþórsson skoraði tvö mörk og lagði upp tvö í 6-0 sigri Víkings.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Borgþórsson átti stórleik þegar Víkingur valtaði yfir Þór, 6-0, í 6. umferð Bestu deildarinnar í kvöld. Óskar skoraði tvö mörk og lagði upp tvö til viðbótar í algjörri markaveislu á Víkingsvellinum.

„Bara ótrúlega góð, við erum mjög sáttir með þennan sigur. 6-0 gerist ekki betra, halda hreinu, bara geggjað,“ svaraði Óskar Borgþórsson um viðbrögð eftir leik. 


Lestu um leikinn: Víkingur R. 6 -  0 Þór

Óskar var eðlilega sáttur með eigin frammistöðu.

„Þetta var ekkert eðlilega gaman á svona kvöldum, þegar maður er einhver veginn bara locked in. Skora tvö og tvö assist, það er bara ekkert betra sko.“

„Þetta er bara statement inn í deildina, sýna að við getum unnið alla, bara 6-0, getum haldið hreinu og skorað eins mikið og við viljum.“

Víkingur gerði sjö breytingar á byrjunarliðinu frá síðasta leik en það virtist ekki hafa nein áhrif á spilamennskuna.

„Já bara mjög vel syncaðir og með geggjaðan hóp. Allir vita sín hlutverk og við erum að nýta allan hópinn sem við höfum.“

Næsti leikur í deildinni er útileikur gegn ÍBV í Vestmannaeyjum og Óskar býst við erfiðu verkefni þar.

„Bara hörkuleik. Það verður erfitt að fara til Vestmannaeyja. Ég veit ekkert hvort við förum með þyrlu, skipi, flugvél eða hvort við syndum eða eitthvað. En við ætlum að fara þangað, vinna og berjast. Það er það sem maður þarf að gera til að vinna í Vestmannaeyjum.“

Óskar fékk að leik lokum góðar móttökur frá ungum stuðningsmönnum Víkings sem fylgdu honum um völlinn og sungu hástöfum. 

Þú getur séð viðtalið í heild og ungu aðdáendurna í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner
banner