Amanda Andradóttir kom gríðarlega sterk inn af bekknum í öruggum 4-0 sigri Molde gegn Roa í norsku deildinni í dag. Molde var 2-0 yfir þegar hún kom inn á 70. mínútu. Hún lagði upp annað markið og innsiglaði sigurinn með því að skora fjórða markið.
Diljá Ýr Zomers spilaði tæpan klukkutíma þegar Brann vann 1-0 sigur á Stabæk. Daníela Dögg Guðnadóttir kom inn á í lokin þegar Álasund lagði Lyn 1-0.
Diljá Ýr Zomers spilaði tæpan klukkutíma þegar Brann vann 1-0 sigur á Stabæk. Daníela Dögg Guðnadóttir kom inn á í lokin þegar Álasund lagði Lyn 1-0.
Sædís Rún Heiðarsdóttir var í byrjunarliðinu og Arna Eiríksdóttir kom inn á sem varamaður þegar Valerenga vann 3-0 sigur á Honefoss. Rosenborg vann 3-0 sigur á Bodö/Glimt. Selma Sól Magnúsdóttir var á bekknum í annað sinn á tímabilinu en hún er að snúa aftur eftir langvarandi meiðsli.
Brann er á toppnum með 19 stig eftir sjö umferðir. Valerenga í 2. sæti með 16 stig, Rosenborg í 3. sæti með 14 stig, Álasund í 4. sæti með 13 stig og Molde er í 7. sæti með sjö stig.
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir spilaði 77 mínútur þegar PEC Zwolle vann 3-2 sigur á Hera United í hollensku deildinni. Liðið er í 5. sæti með 34 stig eftir 21 umferð.



