Víkingur R. 6 - 0 Þór
1-0 Valdimar Þór Ingimundarson ('10 )
2-0 Elías Már Ómarsson ('25 )
3-0 Óskar Borgþórsson ('28 )
4-0 Karl Friðleifur Gunnarsson ('50 )
5-0 Óskar Borgþórsson ('61 )
6-0 Elías Már Ómarsson ('72 )
Lestu um leikinn
1-0 Valdimar Þór Ingimundarson ('10 )
2-0 Elías Már Ómarsson ('25 )
3-0 Óskar Borgþórsson ('28 )
4-0 Karl Friðleifur Gunnarsson ('50 )
5-0 Óskar Borgþórsson ('61 )
6-0 Elías Már Ómarsson ('72 )
Lestu um leikinn
Íslandsmeistarar Víkings fengu nýliða Þórs í heimsókn í fyrsta leik sjöttu umferðar Bestu deildarinnar.
Óskar Borgþórsson fann Valdimar Þór Ingimundarson á fjærstönginni eftir tíu mínútna leik og hann kom Víkingum yfir.
Christian Jakobsen var nálægt því að jafna metin fyrir Þór tíu mínútum síðar en Aron Snær Friðriksson í marki Víkings kom út á móti honum og náði að loka.
Elías Már Ómarsson kom Víkingum tveimur mörkum yfir eftir góðan undirbúning Óskars og stuttu síðar bætti Óskar síðan við þriðja marki liðsins.
Víkingur skoraði síðan fjórða markið snemma í seinni hálfleik. Aron Birkir Stefánsson var í miklum vandræðum eftir hornspyrnu Gylfa Þórs Sigurðssonar og boltinn hafnaði í netinu.
Víkingar voru hvergi nærri hættir því Óskar bætti við öðru marki sínu og fimmta marki Víkings áður en Elías Már negldi síðasta naglann í kistu Þórsara.
Víkingur er á toppnum eins og er með 16 stig en Þór er í 8. sæti með sex stig.
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. KR | 5 | 5 | 0 | 0 | 22 - 9 | +13 | 15 |
| 2. Víkingur R. | 5 | 4 | 1 | 0 | 13 - 4 | +9 | 13 |
| 3. Breiðablik | 5 | 3 | 2 | 0 | 8 - 2 | +6 | 11 |
| 4. Fram | 5 | 3 | 1 | 1 | 15 - 9 | +6 | 10 |
| 5. Valur | 5 | 3 | 0 | 2 | 11 - 9 | +2 | 9 |
| 6. Stjarnan | 5 | 2 | 0 | 3 | 11 - 13 | -2 | 6 |
| 7. Þór | 5 | 2 | 0 | 3 | 5 - 11 | -6 | 6 |
| 8. ÍA | 5 | 1 | 2 | 2 | 6 - 10 | -4 | 5 |
| 9. KA | 5 | 1 | 1 | 3 | 5 - 8 | -3 | 4 |
| 10. Keflavík | 5 | 1 | 1 | 3 | 6 - 10 | -4 | 4 |
| 11. FH | 5 | 0 | 1 | 4 | 8 - 15 | -7 | 1 |
| 12. ÍBV | 5 | 0 | 1 | 4 | 6 - 16 | -10 | 1 |



