Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   þri 18. október 2022 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ramsdale: Besta varslan þegar ég varði með pungnum
Mynd: EPA

Aaron Ramsdale átti frábæran leik þegar Arsenal rétt marði Leeds United um helgina og hélt hreinu á útivelli.


Ramsdale bjargaði sínum mönnum nokkrum sinnum í leiknum og var spurður hver besta varslan hafi verið.

„Ætli það hafi ekki verið þegar ég varði með pungnum," sagði Ramsdale og flissaði. „Þetta hafði mikil áhrif á mig, mér er ennþá smá óglatt núna, en ég er þakklátur fyrir að hafa staðið mig í dag.

„Ég hef ekki verið nógu ánægður með mig á upphafi tímabils og það var frábært að geta hjálpað liðinu í dag.

„Við vorum ekki nógu góðir í dag en við upplifðum mikla hamingju að leikslokum. Það er afar ánægjulegt að ná í þrjú stig eftir að hafa spilað hrikalega illa á útivelli."


Athugasemdir
banner
banner
banner