„Þetta var svona baráttu leikur og skiptist svolítið, við byrjuðum ágætlega í þessum leik. Já já þetta var svona skiptingar fannst mér svona að einhverju leyti en þegar uppi var staðið þá voru þetta bara þrjú stig fyrir okkur." sagði Pétur Pétursson þjálfari Vals eftir 1-2 sigur Vals á Þrótti í Bestu deild kvenna í dag.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 2 Valur
Pétur sagði leikplanið hafa gengið upp og var ánægður með það hvernig liðið brást við eftir að hafa fengið á sig mark en Cyera Hintzen skoraði annað mark Vals aðeins mínútu eftir að Katla Tryggvadóttir hafði jafnað fyrir Þrótt.
„Já já það svo sem gekk alveg upp en maður tekur alveg eftir því líka að leikmenn eru orðnir svolítið þreyttir en mér fannst við líka svara þessu vel eftir að þær jafna 1-1 að við svöruðum þessu strax með örðu markinu.".
Viðtalið við Pétur má sjá heild sinni í spilaranum hér að ofan.