PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
   fös 20. febrúar 2026 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Crystal Palace ætlar ekki að reka Glasner
Mynd: EPA
Stjórnendur Crystal Palace funduðu með Oliver Glasner í dag og verður hann áfram í starfi sínu sem aðalþjálfari þrátt fyrir léleg úrslit undanfarna mánuði.

Spurningar eru uppi um metnaðinn sem Glasner hefur fyrir starfinu hjá Palace en samningur hans við félagið rennur út eftir tímabilið.

Þá hefur hann kvartað í fjölmiðlum undan sölum á lykilmönnum á slæmum tímasetningum, þeim Eberechi Eze til Arsenal síðasta sumar og Marc Guéhi til Manchester City í janúar.

Palace hefur aðeins unnið einn leik af síðustu fimmtán í öllum keppnum og virtist mælirinn vera fylltur eftir 1-1 jafntefli á útivelli gegn Zrinjski Mostar í Sambandsdeildinni í gærkvöldi.

Stuðningsmenn Palace sem fylgdu liðinu alla leið til Bosníu sungu hástöfum að leikslokum „þú verður rekinn í fyrramálið" en höfðu rangt fyrir sér.

Þetta útilokar ekki að Glasner verði rekinn ef slæmt gengi liðsins heldur áfram.

   20.02.2026 13:20
Mun Glasner þrauka út tímabilið? - „Sjáum til hvað framtíðin ber í skauti sér“



Palace fans chant "sacked in the morning" to Glasner after failing to beat Zrinjski Mostar
by
u/boobsenjoyer40 in
soccer

Athugasemdir
banner
banner