Miðvörðurinn Eric García gaf viðtal við Tot Costa eftir annan tapleik Barcelona í röð og gagnrýndi dómara spænska boltans harðlega.
Börsungar töpuðu 4-0 gegn Atlético Madrid í undanúrslitum bikarsins áður en Girona lagði Spánarmeistarana að velli í La Liga, 2-1.
Sigurmark Girona var mjög umdeilt þar sem brotið virtist vera á Jules Koundé í aðdragandanum og þá voru einnig ýmsar ákvarðanir í bikarnum afar umdeildar.
„Það eru ákveðnir hlutir sem við höfum ekki stjórn á. Á þessari stundu líður okkur eins og dómararnir geti bara dæmt öll mörk af okkur sem þeir vilja. Við erum mjög pirraðir eftir þessa tapleiki og við verðum að endurstilla okkur andlega. Við erum meðvitaðir um að við munum fá dómaraákvarðanir gegn okkur og þurfum að halda einbeitingu hvað sem gerist," sagði García.
„Við sköpuðum góð færi á fyrstu fimm mínútunum gegn Atlético. Við skoruðum mark en eftir sjö mínútna athugun í VAR sögðu þeir að þetta væri ólöglegt. Það er gjörsamlega galið, þetta er alltof langur tími. Menn kólna niður og allt tempó hverfur."
Hinn 25 ára gamli García er samningsbundinn Barcelona í fimm og hálft ár til viðbótar eftir að hafa skrifað undir nýjan samning í desember, en hann var næstum því búinn að yfirgefa félagið í janúarglugganum í fyrra til að leika undir stjórn Cesc Fábregas á Ítalíu. Þeir voru báðir á mála hjá Barcelona þegar García var 10 til 13 ára gamall á árunum 2011 til 2014.
„Það var tímapunktur þar sem það leit út fyrir að ég væri á leið til Como, en leikurinn gegn Benfica breytti öllu," sagði García, sem var ekki með byrjunarliðssæti undir stjórn Hansi Flick fyrr en eftir magnaðan 4-5 sigur í Benfica, í leik þar sem Benfica hafði komist í 3-1 forystu. García átti góðan leik og skoraði jöfnunarmark á 86. mínútu.
„Ég ræddi við Flick eftir leikinn og ákvað að vera áfram. Núna get ég sagt að það var rétt ákvörðun."
García er fastamaður í hjarta varnarinnar hjá Barca. Hann er góður á boltann og er að reynast lykilmaður í leikkerfi Flick sem kýs að spila með mjög háa varnarlínu.
17.02.2026 09:00
Börsungar fá falleinkunn - „Öll lið í deildinni farið illa með hann“
Athugasemdir




